...er nafnið á nýja verkefninu mínu og er það þannig að ég á að finna almennt rými sem að mér finnst að megi bæta og koma með tillögur sem að sýna á í landslagmódeli og tilheyrandi teikningum. Núna er ég bara að reyna að fá góðar hugmyndir en þær eru e-s staðar að fela sig (þ.e. hugmyndirnar). Ég skilaði Magnapabba aftur til Íslands á mánudaginn eftir að mamma lánaði mér hann í 9 daga. Á þeim tíma sem að hann var hérna fórum við til Trysil og Osló, skipti um herbergi sem að er miklu betra, fékk sjóvarp, lenti í indversku ævintýri og fleira sem að ég man ekki eftir núna. Í Trysil fór ég á skíði í fyrsta skipti í 6 ár og hafði ég engu gleymt. Foreldrar mínir bjuggu þar árið 1984. Ég fékk þar staðfest að ég hef lifað í blekkingu í allnokkurn tíma og er ég ekki getinn í Noregi og anda ég léttar núna. Í Osló fór ég á stredderí með félögum pabba frá Osló (og pabba auðvitað líka) og einn þeir var milljónamæringur og leiddist ekkert að splæsa á okkur. Ég fór tvisvar í sleik við klósettskálina án þess að nokkur vissi og gerði mörg millilandasímtöl (Ég vil fá að heyra þetta talhólf hjá þér Silla þegar ég kem heim um páskana). Í Bergen er búið að vera vorveður síðustu daga og í dag var sól og 6 stiga hiti og ekki laust við að maður hafi komist í góðan fíling í dag. Nonni og fleiri voru e-ð ósáttir við að ég lét ekki frá mér allan sorann hérna á síðunni frá ferðinni hans hérna fyrir 2 vikum en málið er að ég sá Nonna bara voða lítið því að hann var alltaf týndur með e-i rauðhettu. Mér til huggunar kemur Hr. Hjörvar Ólafsson við hjá mér í Norðurlandareisu sinni eftir nákvæmlega 10 daga. Jæja gott í bili ég barasta
hér koma þá nokkur lög í restina.
Dungen - FamiljSkemmtlegur vorkvölds-göngustígs-dulúðar-fílingur í orgelinu hérna. Ný plata í maí jibbí jei.
Midlake - Roscoe (Beyond The Wizard´s Sleeves remix)Upprunalega lagið er frábært en þetta remix gefur svipaðan fíling og í laginu fyrir ofan.
Francoise Hardy - Le Premier Bonheur du Jour Einu sinni var ég voðalega sniðugur og tók þátt í remixkeppni og tók gítarriffið í byrjun og setti letilegar en þungar trommur yfir. Sem betur fer náði það ekki til margra eyrna en lagið sjálft með henni Francoise er flott og gott og ber með sér góðan vorvind
Marcos Valle - Minha Voz Virá Do Sol da AméricaÞessi kall verður víst að spila á
Bergen Fest samt fleirum (þ.e. Pet Shop Boys og fyrrgreindum Midlake). Titilinn skil ég ekkert í en ég ætla að þýða hann lauslega "sólin sest niður hjá Ameríku".
Client - Lights Go Out (Oliver Koletzki & Florian Meindl mix)Mr. Flagio - Take A ChanceSvo er ég að dansa mikið einn í nýja herberginu mínu við þessi lög núna. Berlinarbollu minimal + Italo disco = úje. (þegar þið hlustið á Mr. Flagio ekki svekkja ykkur ef að Herbert Guðmundson kemur upp í huga ykkar, hvað sem að það á að þýða)
-----------
Þess má geta að Hjörvar er eldgleypir og töframaður. Hann er fara ferðast um Norðurlöndin vikuna 7.-14. mars. Ef þið viljið styrkja för hans getiði ábyggilega náð honum í Lögbergi þar sem hann lætur sjá sig eftir hentisemi. Endilega hendið svona einum 500 kalli á hann svo að hann nái að komast til Finnlands en það virðist vera heitasti staður norðan Vatnajökuls þessa dagana (þá á ég við kvenfólkið, Jón Bjarni og fleiri muna væntanlega eftir Hvítu Sígarettunni frá Bergensferðinni sinni. Núna get ég ekki bullað meira um Hjöbba sem að er alltaf að væla á MSN. Hér kemur mynd,
hún er ekki að Hjörvari heldur af e-m pervert með nærbuxur af gamalli konu: